Líflegur uppbrotsdagur

Miðvikudaginn 18. febrúar var uppbrotsdagur í skólanum sem var að þessu sinni helgaður heilsu, vellíðan og kvikmyndum. Boðið var upp á námskeið, fyrirlestra og kvikmyndasýningar. Nemendur skráðu sig á þrjár stöðvar yfir daginn og gátu valið um margs konar hreyfingu og leiki, hugleiðslu, dans, jóga og margt fleira auk fræðslu um heilsu og heilbrigðan líffstil. Allir tóku þátt af lífi og sál og það var líf og fjör um allan skólann.

Í fyrsta hléi dagsins var boðið upp á ávexti og létt skemmtiatriði á sal. Í hádeginu var svo matartorg þar sem boðið var upp á fjölbreyttar veitingar. Hinn eini sanni Jón Jónsson mætti svo á svæðið og tók nokkur lög og myndaðist mikil stemning í salnum. Þetta var fimmta árið í röð sem Jón heldur uppi fjörinu á uppbrotsdegi og kappinn brást ekki frekar en fyrri daginn. Það er óhætt að segja að þessi frábæri tónlistarmaður hafi farið á kostum og salurinn söng og dansaði með í hverju lagi.

Hér er veglegur myndapakki frá uppbrotsdeginum.