Kynningarfundur fyrir foreldra 1. september

Kynningarfundur fyrir foreldra verður á sal skólans þriðjudaginn 1. september kl. 17:30. Þar verður vefur skólans og skólakerfið Inna kynnt, forsvarsmenn nemendafélagsins NFS kynna starfsemi félagsins og þá verður erindi frá foreldrafélagi FS.

Foreldrar/forráðamenn nýnema eru sérstaklega boðin velkomin en á fundinum geta þau m.a. rætt við umsjónarkennara barna sinna auk skólastjórnenda, námsráðgjafa og félagsráðgjafa. Fundinum er streymt á YouTube-rás skólans. Athugið að ekki er hægt að sjá í streyminu það sem sýnt er á tjaldinu á fundinum, t.d. vef skólans og Innu.