Jólastemning allt um kring

Vikuna 23.-27. nóvember stóð nemendafélagið fyrir jólaviku. Í hádeginu var keppt í að skreyta piparkökuhús, kökur og hurðir á skólastofum og boðið var upp á kakó og piparkökur. Á miðvikudagskvöldið var svo skemmtikvöld. Þau Bruno, Monika, Ketty og Kamila í mötuneytinu létu ekki sitt eftir liggja og buðu upp á glæsilegan jólamat. Hægt var að velja um hamborgarhrygg eða kalkún með brúnuðum kartöflum og öðru meðlæti og svo var meira að segja Ris a la mande á eftir. Fólk kunni vel að meta kræsingarnar og um tíma náði röðin út að dyrum. Vikunni lauk svo með jólafatadegi þar sem fólk mætti í margvíslegum peysum, sokkum og öðru jólalegu.

Í myndasafninu eru þó nokkrar myndir frá jólavikunni.