Hjólað í vinnuna

Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“. Í ár taka starfsmenn FS virkan þátt í átakinu.

Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þrjár vikur í maí ár hvert.

Í ár stendur átakið yfir frá 5. - 25. maí og er hægt að fylgjast með framgangi keppninnar á vefsíðu hennar en keppt er í mörgum mismunandi flokkum.