Guðjón Þorgils vann Söngkeppni framhaldsskólanna

Guðjón Þorgils Kristjánsson fulltrúi skólans sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í Háskólabíó laugardaginn 11. apríl. Guðjón flutti lagið Strange eftir Celeste sem hann söng með eigin texta og nefndi lagið Ég skil ekki neitt.

Í öðru sæti voru Baldur Björn Arnarsson og Sverrir Arnar Hjaltason úr Verslunarskóla Íslands með lagið Way Down We Go og í þriðja sæti var Katla Líf Drífu-Louisdóttir Kotze úr Menntaskólanum í Reykjavík með lagið Lúxus líf. Alls tóku keppendur frá 25 framhaldsskólum þátt í keppninni í ár.

Dómnefndina skipuðu Helgi Björnsson, Bríet og Þormóður Egilsson og gilti val þeirra til helmings á móti atkvæðum í sms-kosningu áhorfenda.

Þetta er í fyrsta sinn sem fulltrúi FS sigrar Söngkeppni framhaldsskólanna og við óskum Guðjóni hjartanlega til hamingju með sigurinn og frammistöðuna.

Myndirnar með fréttinni eru teknar úr útsendingu RÚV frá keppninni.