- Upplýsingar - 10. bekkur
- Skólinn
- Námið
- Önnin
- Þjónusta
- Hafa samband
- Íslenska
- English
- Polski
Fimmtudaginn 19. maí fór vaskur hópur útskriftarnema ásamt nokkrum kennurum og gróðursetti nokkrar trjáplöntur í svæði Skógræktarfélags Suðurnesja við Vatnsholt. Það er skemmtileg hefð sem hefur myndast að útskriftarefni skólans gróðursetji trjáplöntur, að vori þeir sem útskrifast af vorönn en í byrjun haustannar þeir sem útskrifast í desember. Sjón er sögu ríkari og hér má sjá nokkrar myndir frá gróðursetningunni.