Góður sigur í Morfís

Ræðulið FS tók þátt í ræðukeppninni Morfís þann 23. febrúar. Þar atti liðið kappi við lið Tækniskólans og vann með 520 stiga mun. Guðni Kjartansson var valinn ræðumaður kvöldsins. Okkar fólk mætir svo liði MH í næstu viðureign í 8 liða úrslitum.

Liðið skipa Betsý Ásta Stefánsdóttir frummælandi, Andri Sævar Arnarsson meðmælandi, Guðni Kjartansson stuðningsmaður og Lárus Logi Elentínusson liðsstjóri. Þjálfarar liðsins eru Þór Símon Hafþórsson og Tómas Gauti Jóhannsson.

Við óskum okkar fólki til hamingju með sigurinn og góðs gengis í næstu umferð.

Myndin með fréttinni er af Instagram-síðu nemendafélagsins en þar er hægt að fylgjast með öllu því nýjasta hjá NFS.