Góð gjöf frá JBÓ

Pípulagnadeild skólans fékk góða gjöf þegar JBÓ pípulagnir færðu deildinni fullkominn plastsuðubekk til að nota við kennslu. Það var Sveinbjörn Ægir Karvelsson fulltrúi JBÓ sem afhenti bekkinn en Óskar Júlíus Bjarnason kennari í pípulögnum tók við gjöfinni fyrir hönd skólans. Við þökkum fyrir okkur og bekkurinn á eftir að koma að góðum notum í kennslunni. 

Á myndinni er Sveinbjörn til vinstri en Óskar til hægri.