Fyrsti hópurinn útskrifast úr ÍAK einka- og styrktarþjálfun

Fyrsti hópurinn í ÍAK einka- og styrktarþjálfun var útskrifaður frá skólanum föstudaginn 23. maí. Þetta nám var áður hjá Keili en fluttist til Fjölbrautaskóla Suðurnesja haustið 2024.

Í fyrsta hópnum sem útskrifaðist frá FS voru 13 nemendur og reyndar allt konur. Við útskriftina flutti Elvar Smári Sævarsson, umsjónarmaður brautarinnar, stutt ávarp. Þar ræddi hann m.a. um hlutverk einka- og styrktarþjálfara við að efla heilsu og sjálfsmynd fólks og einnig við þjálfun afreksíþróttamanna. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og Ingibjörg Eðvaldsdóttir flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnemenda. Helena Rut Borgarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn við útskrift.

Í myndasafninu eru fleiri myndir frá útskriftinni.