Nemendur í myndlistargreinum taka þátt í Samsýningu framhaldsskólanna 27. nóvember - 3. desember. Það er árleg sýning á verkum nemenda víðs vegar að af landinu sem stendur yfir í rúma viku. Sýningin fer fram í Sögu, húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, þar sem almenningi gefst kostur á að skoða fjölbreytt og skapandi verkefni nemenda.
Með þátttöku í sýningunni fá nemendur tækifæri til að kynna afrakstur náms síns, deila hugmyndum og mynda tengsl við aðra nemendur og gesti. Markmið sýningarinnar er að varpa ljósi á mikilvægi list- og verkgreina í menntun og samfélagi, auk þess að hvetja til nýsköpunar, frumkvöðlastarfs, sjálfbærni og samþættingar STEAM-greina.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru rauður þráður í gegnum sýninguna. Nemendur geta merkt verk sín með spjaldi sem vísar til þess heimsmarkmiðs sem þau telja tengjast verkinu best og þannig sýnt fram á hvernig verk þeirra stuðla að sjálfbærri þróun og jákvæðum samfélagsáhrifum.
Á þriðjudaginn voru nemendur í óða önn að setja upp sýninguna í dag ásamt kennara sínum Gunnhildi Þórðardóttur-Place.
Sýningin er opin 27. nóvember - 3. desember kl. 10-18.


