FS í samstarf við AFS á Íslandi

Fjölbrautaskóli Suðurnesja hefur hafið samstarf við AFS á Íslandi sem gefur nemendum skólans kost á að sækja um að fara í skiptinám á fullum styrk frá Erasmus+. Þetta þýðir að nemendur geta farið í skiptinám án þess að leggja út í mikinn kostnað vegna dvalarinnar.

Kynning á skiptinámi á vegum AFS og þessum nýja möguleika á styrk verður haldin í sal FS þriðjudaginn 31. janúar kl. 15:00.

Nánari upplýsingar:

Hvað: Upplifðu það að vera ungmenni í öðru landi innan Evrópu, hjá fósturfjölskyldu, í nýjum skóla!

Hver: Ert þú nemandi á aldrinum 16-18 ára og hefur áhuga á skiptinámi? Þá er þetta tækifæri fyrir þig.

Hvenær: Brottför verður í ágúst eða september 2023.

Möguleg lönd: Nokkur lönd í Evrópu í boði (Dæmi: Belgía frönsku- og flæmskumælandi, Slóvakía, Tékkland o.fl.).

Lengd: 3 mánuðir, 5 mánuðir eða 10 mánuðir.

Fæ ég að velja landið? Nei - nemendur sem að vilja fara “hvert sem er” fá plús í kladdann :)

Athugið að sérstök áhersla er lögð á að veita nemum með færri tækifæri á að fara í skiptinám.

En við tökum á móti öllum umsóknum, þannig ekki hika við að sækja um.

Umsóknarfrestur: 5. febrúar kl. 23:59.

Sækja um: hér

Nánari upplýsingar veitir Harpa Kristín verkefnastjóri erlendra samskipta: harpa.einarsdottir@fss.is og skrifstofa AFS á Íslandi: info-isl@afs.org