FS fékk viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA

Fjölbrautaskóli Suðurnesja hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir stofnunina sem og samfélagið allt.
 
Höfum í huga að jafnrétti er ekki verkefni sem lýkur heldur stöðug vinna og við ætlum að halda áfram að gera enn betur.