Frumkvöðlar á vörumessu

Vörumessa Ungra frumkvöðla fór fram í Smáralindinni 17.–18. apríl. Nemendur í frumkvöðlafræðiáfanga taka þátt í keppninni eins og undanfarin ár. Þau hafa unnið alla önnina að því að þróa vörur sem þau kynntu síðan á messunni. Að þessu sinni átti skólinn 29 fulltrúa sem fóru fyrir níu fyrirtækjum. Fjölbreytnin var mikil og hönnuðu nemendur bæði vörur og þjónustu á app formi. Nú tekur við skrif á lokaskýrslu hjá nemendum og bið eftir úrslitum en um 140 fyrirtæki taka þátt í ár og 40 fyrirtæki komast í úrslitin sem fram fara í Arion banka í lok mánaðarins.

Við erum ótrúlega stolt af okkar fólki sem sannarlega á framtíðina fyrir sér í nýsköpun.

Í myndasafninu eru fleiri myndir frá vörumessunni en þar eru myndir af öllum liðunum og vörunum sem þau kynntu.