Fróðleg heimsókn í Geislatækni

Nemendur í vélvirkjun, rennismíði og grunndeild málmiðna heimsóttu Geislatækni í Garðabæ þann 20. apríl. Fyrirtækið sérhæfir sig í nýsmíði íhluta fyrir hátæknibúnað sem krefst nákvæmi, meðal annars með laserskurðarvélum og tölvustýrðum beygjuvélum. Fyrirtækið er því fyrirmyndardæmi fyrir nemendur til að sjá nákvæmni og hugvit málmiðna í verki.

Nemendur fengu að kynnast framleiðsluferlinu, frá því að stálplata er skorin í laser, slípuð, beygð og TIG soðin saman. Nemendur höfðu orð á því hve snyrtileg þessi smíðavinna er því hægt væri að ganga í gegnum vinnslusali á sokkunum.

Málmiðnadeild FS þakkar Geislatækni móttökurnar.