Frá útskrift vorannar

Skólaslit vorannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram föstudaginn 26. maí. Að þessu sinni útskrifuðust 132 nemendur; 91 stúdent, 26 luku verknámi, 7 útskrifuðust af sjúkraliðabraut, 14 af starfsbrautum og einn af framhaldsskólabraut. Þess má geta að sumir ljúka prófi af fleiri en einni braut. Karlar voru 67 en konur 65. Alls komu 92 úr Reykjanesbæ, 17 úr Suðurnesjabæ, 13 úr Grindavík, 4 úr Vogum og aðrir komu frá Reykjavík, Hafnarfirði, Vopnafirði, Kópaskeri og Vestmannaeyjum.

Dagskráin var með hefðbundnu sniði. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Logi Þór Ágústsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Gunnlaugur Sigurðsson kennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu sinni lék Sara Cvjetkovic nýstúdent á píanó og Magnús Már Newman nýstúdent spilaði sneriltrommudúett ásamt Þorvaldi Halldórssyni.

Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og þátttöku í félagslífi og má sjá nöfn verðlaunahafa hér. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift. Að þessu sinni voru þau Anita Yrr Taylor og Stefán Elías Davíðsson Berman bæði með 9,72 í meðaleinkunn og fengu bæði styrk úr skólasjóði. Anita og Stefán fengu einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi.

Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Logi Þór Ágústsson og Magnús Már Newman fengu hvor 50.000 kr. styrk fyrir störf í þágu nemendafélags skólans og þær Elísabet Birgisdóttir, Ragnheiður Ýr Þórisdóttir og Tinna Björg Hammer Gunnarsdóttir fengu 30.000 kr. styrk fyrir góðan árangur í tjáningu og ræðumennsku.

Við útskriftina veittu foreldrafélag skólans og Reykjanesbær verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum nemendafélagsins í vetur. Lilja Dögg Friðriksdóttir forvarnafulltrúi skólans afhenti verðlaunin. Það voru þau Jón Garðar Arnarsson og Margrét Norðfjörð Karlsdóttir sem voru dregin úr hópi þeirra nemenda sem uppfylltu skilyrðin fyrir þátttöku en þau fengu bæði spjaldtölvu að gjöf.

Við lok athafnarinnar voru þau Þorvaldur Sigurðsson, Björn Sturlaugsson, Gunnlaugur Sigurðsson, Ásta Birna Ólafsdóttir og Jón Þorgilsson kvödd en þau láta nú af störfum við skólann. Þorvaldur gat því miður ekki verið við athöfnina. Skólameistari veitti Gunnlaugi einnig silfurmerki skólans fyrir framlag hans til skólans undanfarin 20 ár.

Að lokum sleit Kristján Ásmundsson skólameistari vorönn 2023.

Í myndasafninu er myndapakki frá útskriftinni.