Frá útskrift vorannar

Skólaslit vorannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram laugardaginn 21. maí. Að þessu sinni útskrifuðust 109 nemendur; 79 stúdentar, 15 luku verknámi og 8 útskrifuðust af starfsnámsbrautum. Þá luku 3 nemendur prófi af starfsbraut og 7 af framhaldsskólabraut. Nokkrir nemendur brautskráðust af tveimur námsbrautum. Konur voru 48 og karlar 61. Alls komu 78 úr Reykjanesbæ, 13 úr Grindavík, 12 úr Suðurnesjabæ, 4 úr Vogum, einn úr Garðabæ og einn úr Kópavogi.

Dagskráin var með hefðbundnu sniði. Guðlaug Pálsdóttir skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðmundur Grétar Karlsson aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Guðmundur Rúnar Júlíusson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Ása Einarsdóttir kennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu sinni lék Eygló Ósk Pálsdóttir nýstúdent á klarinett en Kristján Karl Bragason lék undir á píanó. Sara Cvjetkovic lék á píanó en hún er nemandi í skólanum.

Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og þátttöku í félagslífi og má sjá nöfn verðlaunahafa hér. Guðlaug Pálsdóttir skólameistari afhenti námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Bryndís María Kjartansdóttir 100.000 kr. styrk en hún var með 9,48 í meðaleinkunn. Bryndís María fékk einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi.

Við útskriftina veittu foreldrafélag skólans og Reykjanesbær verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum félagsins í vetur. Það voru þau Andri Sævar Arnarsson og Gabríela Þórunn Gísladóttir sem voru dregin úr hópi þeirra nemenda sem uppfylltu skilyrðin fyrir þátttöku en þau fengu bæði spjaldtölvu að gjöf.

Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Georg Viðar Hannah, Eva Margrét Falsdóttir, Natalía Sif Stockton og Aswin Manoj fengu 30.000 kr. styrk fyrir góðan árangur í tjáningu og ræðumennsku.

Við lok athafnarinnar voru kennararnir Ása Einarsdóttir, Axel Gísli Sigurbjörnsson, Þórunn Svava Róbertsdóttir og Lovísa Larsen kvödd en þau láta nú af störfum við skólann. Þau Ása og Axel voru kvödd sérstaklega en þau hafa starfað við skólann í meira en þrjá áratugi og gegnt þar ýmsum störfum.

Að lokum sleit Guðlaug Pálsdóttir skólameistari vorönn 2022.