Viðurkenningar á útskrift

Á útskrift vorannar voru veittar fjölmargar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu. Hér er yfirlit yfir verðlaunahafa. Á myndinni með fréttinni er Bryndís María Kjartansdóttir sem var með hæstu meðaleinkunn við þessa útskrift.

  • Bryndís María Kjartansdóttir fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan árangur í ensku, félagsfræði, íslensku, sögu, sálfræði og spænsku. Hún fékk einnig gjafir frá Landsbankanum fyrir árangur sinn í samfélagsgreinum, íslensku og erlendum tungumálum. Bryndís María fékk námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Bryndís María 100.000 kr. styrk en hún var með 9,48 í meðaleinkunn. Hún fékk einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi.
  • Helena Rafnsdóttir fékk verðlaun frá skólanum fyrir árangur sinn í ensku og spænsku. Hún fékk einnig gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í stærðfræði og raungreinum, viðurkenningu frá Efnafræðifélaginu fyrir góðan árangur í efnafræði og frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir árangur sinn í stærðfræði. Þá fékk Helena Menntaverðlaun HÍ fyrir framúrskarandi frammistöðu á stúdentsprófi.
  • Sigurveig Sara Guðmundsdóttir hlaut viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan árangur í spænsku, íslensku og efnafræði. Hún fékk einnig verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir árangur sinn í stærðfræði og gjöf frá Stærðfræðifélaginu fyrir árangur í stærðfræði. Sigurveig Sara fékk Raungreinaverðlaun HR sem veitt eru fyrir góðan árangur í raungreinum á stúdentsprófi.
  • Alma Rut Einarsdóttir fékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í efnafræði, líffræði og stærðfræði. Hún fékk einnig viðurkenningu frá Þekkingarsetri Suðurnesja fyrir góðan árangur í náttúrufræðigreinum.
  • Eyþór Ingi Einarsson fékk viðurkenningar fyrir árangur sinn í efnafræði, ensku, og viðskiptafræði.
  • Þórdís María Aðalsteinsdóttir fékk viðurkenningar fyrir árangur í ensku, sögu og sálfræði.
  • Andri Sævar Arnarsson hlaut viðurkenningar fyrir góðan árangur í félagsfræði og íþróttafræði og fyrir störf í þágu nemenda.
  • Daði Fannar Reinhardsson hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í efnafræði og verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir árangur sinn í stærðfræði.
  • Eygló Ósk Pálsdóttir fékk viðurkenningar fyrir árangur í myndlist og listasögu.
  • Guðni Kjartansson fékk viðurkenningar fyrir árangur sinn í ensku og félagsfræði.
  • Sigrún Dóra Ómarsdóttir fékk gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan námsárangur í verk- og tæknigreinum. Hún fékk einnig verðlaun fyrir góðan árangur á verknámsbraut rafvirkjunar og fékk þar gjafir frá Ískraft, Rönning og Reykjafelli.
  • Patryk Szablewski fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur á verknámsbraut rafvirkjunar og fékk gjafir frá Ískraft, Rönning og Reykjafelli.
  • Ástþór Ingi Gestsson, Samúel Skjöldur Ingibjargarson og Sóley María Ágústsdóttir fengu viðurkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræði.
  • Kristján Daði Arnarson og Maríus Máni Karlsson fengu verðlaun fyrir árangur sinn í ensku.
  • Hrafnhildur S. Sumarliðadóttir og Jón Ágúst Þórunnarson fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í hjúkrunargreinum.
  • Ísak Máni Hilmarsson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur á starfsbraut.
  • Ásthildur Eva Hólmarsdóttir Olsen hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur á íþrótta- og lýðheilsubraut.
  • Berglind Steinunn Heimisdóttir fékk viðurkenningu fyrir árangur sinn í líffræði.
  • Birgir Örn Guðsveinsson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í listasögu.
  • Fróði Kjartan Rúnarsson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í eðlisfræði.
  • Gabríel Orri Karlsson hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í vefforritun.
  • Hulda Björk Ólafsdóttir fékk viðurkenningu fyrir árangur sinn í sálfræði.
  • Jóhann Helgi Björnsson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í viðskiptafræði.
  • Júlíus Gian Agana Jóhannsson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í tölvugreinum.
  • Lovísa Rut Rúnarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í spænsku.
  • Rúnar Ágúst Sveinsson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í forritun.
  • Stefanía Lind Guðmundsdóttir fékk viðurkenningu fyrir árangur sinn í fata- og textílgreinum.
  • Guðmundur Rúnar Júlíusson, Hrannar Már Albertsson og Sara Mist Sumarliðadóttir fengu viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda.