Frá kynningarfundi fyrir foreldra nýnema

Þriðjudaginn 1. september var kynningarfundur fyrir foreldra nýnema. Fundurinn var haldinn á sal skólans og var einnig streymt á YouTube.

Guðlaug Pálsdóttir skólameistari setti fundinn og bauð gesti velkomna. Elín Rut Ólafsdóttir áfangastjóri kynnti vef skólans og Guðmundur Grétar Karlsson aðstoðarskólameistari sýndi hvernig foreldrar geta fylgst með námi barna sinna í skólakerfinu Innu. Rannveig Sigríður Ragnarsóttir félagsráðgjafi og Elínborg Ingvarsdóttir tómstundafulltrúi sögðu frá sínum störfum. Stjórn nemendafélagsins NSF kynnti starfsemi félagsins og að lokum kynnti Danijela Zivojinovic foreldrafélag FS og buðu nokkrir fundargesta sig fram í stjórn félagsins.

Að dagskránni lokinni gafst gestum tækifæri til að ræða við umsjónarkennara barna sinna, skólastjórnendur, námsráðgjafa, félagsráðgjafa og tómstundafulltrúa skólans.

Athugið að enn er hægt að horfa á upptöku af fundinum á YouTube-rás skólans en á fundinum komu fram margvíslegar gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra.

Í myndasafninu eru nokkrar myndir frá kynningarfundinum.