Erasmus+ verkefni: Undirbúningsfundur í Eger, Ungverjalandi

Um miðjan janúar lögðu þrír starfsmenn skólans land undir fót og sóttu undirbúningsfund fyrir nýtt Erasmus+ samstarfsverkefni sem nú er að fara af stað. Fundinn sóttu Guðmundur Grétar Karlsson aðstoðarskólameistari, Harpa Kristín Einarsdóttir verkefnastjóri erlendra samskipta og Kristjana Hrönn Árnadóttir sem stýrir verkefninu fyrir hönd FS. Fundurinn gekk í alla staði mjög vel og eru samstarfsaðilar búnir að stilla saman strengi og tilbúnir fyrir skemmtilegt samstarf næsta árið. Þessa dagana er verið að velja nemendur til þátttöku í verkefninu en 15 nemendur geta tekið þátt. Farið verður í heimsókn til samstarfslandanna með fimm nemendur og tvo kennara þar sem þátttakendur kynnast menningu landsins sem þau heimsækja. Auk þess munu þátttakendur skipuleggja og taka þátt í dagskrá þegar kemur að FS að vera gestgjafi.