Bleikur FS í október

Eins og undanfarin ár er skólinn bleikur í október. Bleik ljós lýsa skólann upp til að minna á átak Krabbameinsfélagsins sem er tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Átakið nær hámarki með bleika deginum föstudaginn 14. október og við hvetjum alla til að taka þátt. Meðfylgjandi mynd var tekin á dögunum þegar bleiku ljósin voru kveikt og norðurljósin bættust við og tóku þátt í sýningunni.