Bleikir bolir og bakkelsi á Bleika deginum

Bleiki dagurinn var miðvikudaginn 21. október og tóku nemendur og starfsfólk virkan þátt í að halda upp á þennan mikilvæga dag. Fjölmargir mættu í bleiku í tilefni dagsins og sýndu þannig stuðning og samstöðu með konum sem hafa greinst með krabbamein. Nemendafélagið seldi heimabakaðar bleikar vöfflur með bleikum rjóma og kremi en afraksturinn rennur til Krabbameinsfélagsins. Á kennarastofunni var boðið upp á bleika köku og svo var skellt í hefðbundna hópmyndatöku.
 
Í myndasafninu er myndapakki frá Bleika deginum.