Bleiki dagurinn á föstudag

Bleiki dagurinn er föstudaginn 14. október en þennan dag mæta nemendur og starfsfólk í einhverju bleiku. Tilgangurinn er að sýna samstöðu með baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Dagurinn er hluti af átakinu Bleika slaufan sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir í október á hverju ári. Undanfarin ár hafa nemendur og starfsfólk FS tekið þátt í Bleika deginum með því að mæta í einhverju bleiku í skólann, hvort sem það er peysa, sokkar eða klútur. Við hvetjum alla til að taka líka þátt í ár, styðja gott málefni og búa um leið til skemmtilegan dag í skólanum.