Alþjóðadagur kennara

Í dag, 5. október, er alþjóðadagur kennara haldinn hátíðlegur um heim allan. Á þessum degi er kastljósinu beint að kennurum og rýnt í hið mikilvæga starf sem þeir inna af hendi á degi hverjum. 

Kennaradagurinn í ár er sá 28. í röðinni en fyrst var efnt til dagsins árið 1994. Það voru UNESCO, Menntamálastofnun Sameinuðu þjóðanna, í samvinnu við Alþjóðasamband kennara (Education International) sem tóku sig saman um að halda árlegan kennaradag til að vekja athygli á störfum kennara.

UNESCO hefur á hverju ári lagt fram slagorð í tilefni dagsins. Að þessu sinni er slagorðið: The transformation of education begins with teachers! – sem mætti útleggja svo: Umbreyting menntunar hefst hjá kennurum.

Í yfirlýsingu UNESCO segir að alþjóðasamfélagið þurfi að taka höndum saman um að tryggja menntun til handa öllum börnum. Við margt er að glíma, svo sem undangenginn heimsfaraldur, stríðsátök, félagslegan ójöfnuð og hlýnun jarðar, svo nokkur atriði séu nefnd. Kennarar gegna mikilvægu hlutverki sem aldrei fyrr, þeir eru hjartað í menntakerfum heims, án þeirra er ógjörningur að veita nemendum gæðamenntun, segir UNESCO.