Áfangakynning á sal

Fimmtudaginn 5. febrúar var kynning á valáföngum á sal. Þar kynntu kennarar í ýmsum námsgreinum þá valáfanga sem nemendur geta tekið á næstu önn. Þar má nefna áfanga í sögu, sálfræði, tungumálum, íþróttum, textíl, raungreinum, tölvugreinum, viðskiptagreinum, listgreinum o.fl. Nemendur voru duglegir að spyrja og ræða við kennara. Nemendur hafa örugglega fundið spennandi valáfanga til að velja á næstu önn og ekki síður áfanga sem henta sem undirbúningur fyrir frekara nám.

Þetta er í fjórða sinn sem boðið er upp á kynningu á valáföngum á sal og er þetta gott tækifæri fyrir nemendur að kynna sér þá fjölbreyttu valáfanga sem eru í boði. Valáfangarnir eru svo líka kynntir á veggjum og auglýsingaskjám á meðan valið stendur yfir.

Í myndasafninu eru nokkrar myndir frá áfangakynningunni.