Af Bleikum degi

Föstudaginn 14. október mátti sjá óvenjumarga í bleiku í skólanum enda Bleiki dagurinn. Starfsmenn tóku sig saman og mættu flestir í einhverju bleiku og hópur nemenda var einnig með. Tilgangurinn er að sýna samstöðu með baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Dagurinn er hluti af átakinu Bleika slaufan sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir í október á hverju ári.