Vinningshafar í Lífshlaupinu 2021

Vinningshafar í innanhússkeppni Lífshlaupsins 2021
Vinningshafar í innanhússkeppni Lífshlaupsins 2021

Starfsfólk FS tók þátt í Lífshlaupinu sem var haldið í febrúar. Samhliða var haldin innanhússkeppni á milli starfsmannahópa og skapaðist mikil stemmning í starfsmannahópnum. Veitt voru verðlaun í fimm flokkum og stigahæsta liðið hlaut að lokum "Lífsskóinn" sem er farandgripur. Það er því ljóst að starfsfólk FS mun ekki láta sitt eftir liggja í Lífshlaupinu á næsta ári því keppnisskapið er mikið. Alls lenti FS í 10. sæti í vinnustaðakeppninni þetta árið í hópi vinnustaða með 70-149 starfsmenn af þeim 98 sem tóku þátt í þessum flokki. 

Alls tóku 60 starfsmenn þátt í Lífshlaupinu þetta árið og hreyfðu þeir sig í 927 daga í heildina eða í 74891 mínútur í heildina. Þáttökuhlutfallið var 69%.