Viðurkenningar í ljóðasamkeppni

Lena, Sabrina, Gunnhildur og Arnar þegar viðurkenningarnar voru afhentar á bókasafni skólans.
Lena, Sabrina, Gunnhildur og Arnar þegar viðurkenningarnar voru afhentar á bókasafni skólans.

Þriðjudaginn 17. nóvember voru veittar viðurkenningar í ljóðasamkeppni sem efnt var til í tilefni 50 ára afmælis skólans í haust. Efni ljóðanna átti að tengjast skólanum eða afmælinu á einhvern hátt. Nokkur fjöldi ljóða barst og var ákveðið að veita þremur þátttakendum viðurkenningu. Það voru þau Arnar Elvarsson, Lena Brzozowska og Sabrina Nabizada og fengu þau að launum bókargjöf frá Pennanum-Eymundsson. Það var Gunnhildur Þórðardóttir-Place úr afmælisnefndinni sem afhenti viðurkenningarnar.