Vettvangsferð í M.S. Helgafell

Nemendur af vélstjórnarbraut fóru á dögunum og skoðuðu M.S. Helgafell sem er stærsta skip Samskipa á Íslandi. Með í för voru 10 nemendur og kennararnir Ívar Valbergsson og Þorsteinn Ingi Hjálmarsson. Það voru Hjörtur B. Björnsson yfirvélstjóri og Blængur Blængsson framkvæmdastjóri skipasviðs Samskipa sem tóku vel á móti hópnum og sýndu skipið.

Hópurinn skoðaði auðvitað vélabúnað skipsins en aðalvél þess er hvorki meira né minna en 7200 kw. Nemendum fannst mikið til koma en tóku eftir því að skjástýrikerfið var svipað og í þrívíddarhermum sem notaðir eru í kennslunni í skólanum.

Hópurinn skoðaði einnig rafstöðvar, síur, hreinsibúnað og fleira. Þá fengu nemendur að skoða brú, eldhús, messa og líkamsræktarsal þessa risastóra skips. Eftirtektarvert var hvað allt var snyrtilegt og umgengni góð á þessu 20 ára gamla skipi sem erlendir eftirlitsaðilar hafa tekið eftir, Samskipum til sóma.

Nemendur og kennarar voru mjög ánægðir með skemmtilega og fróðlega heimsókn enda fékk hópurinn frábærar móttökur um borð. Endað var á Sænska veitingahúsinu í Garðabæ og öll komu södd og glöð heim.