Stundatöflur hafa verið birtar

Búið er að opna stundatöflur í Innu. Kennsla hefst á föstudagsmorgun kl. 8:15 eftir hefðbundnum stundatöflum. Nemendur eiga að sjálfsögðu að mæta með skólabækur og ritföng frá fyrsta degi. Ef nemandi er í stærðfræðiáfanga þarf hann að mæta með vasareikni.

Mikilvægt er að skoða vel stundatöfluna sína og kanna hvort allir áfangar eru þar. Hugsanlegt er að einhverjir áfangar hafi ekki komist inn í stundatöfluna og þá ber nemandi sjálfur ábyrgð á því að finna annan áfanga til að setja í staðinn.

Töflubreytingar verða eingöngu rafrænar í gegnum Innu. Þegar búið er að opna fyrir stundatöflur í Innu geta nemendur óskað eftir töflubreytingum. Á vef skólans eru bæði leiðbeiningar hvernig það er gert og hvenær allir áfangar eru kenndir.

Nemendur sem ætla að útskrifast í desember þurfa að panta viðtal hjá áfangastjórum sem fyrst, pantið viðtal á skrifstofu.

Hér má sjá skóladagatal haustannar