Upphaf haustannar

Haustönn hefst með nýnemadegi miðvikudaginn 16. ágúst kl. 13:00-15:00. Þar hitta bekkir umsjónarkennara sína og fá kynningu á skólanum. Strætó fer aukaferð úr Grindavík kl. 12:30 þennan dag en annars gildir áætlun Strætó. Nýnemar og forráðamenn þeirra fá tölvupóst með frekari upplýsingum um nýnemadaginn.

Opnað verður fyrir stundatöflur í Innu miðvikudaginn 16. ágúst en í síðasta lagi fimmtudaginn 17. Nemendur eru hvattir til að skoða stundatöflur sínar og bókalista og kaupa kennslubækur sem fyrst.

Hefðbundin kennsla hefst föstudaginn 18. ágúst og þá þurfa nemendur að mæta með kennslubækur, skriffæri og annað sem þarf. Nemendur eru hvattir til að mæta með eigin fartölvur ef þeir hafa tök á því.