Takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar

Í upphafi annar einkennist skólastarf FS af ýmsum takmörkunum. Stokkatöflunni hefur verið breytt til að minnka umgang nemenda um húsið. Nemendur eru beðnir um að ganga inn um ákveðna innganga til að komast inn í skólann og matartíminn er þrískiptur. Eins fer hluti af námi nemenda fram í fjarnámi, blöndu af stað- og fjarnámi eða staðnámi eingöngu. Sjá nánar hér fyrir neðan.

Nemendur nota eftirfarandi innganga:

  • Inngangur A: Stofur 101 – 110 + Listnám á 3. Hæð
  • Inngangur B: Stofur 201 – 212
  • Inngangur C: Allar aðrar stofur

Upplýsingar um tilhögun kennslu í áföngum:

Skipulag matartíma nemenda (smellið á mynd til að sjá stóra útgáfu) 

 

 

 

 

Úr stjórnartíðundum Nr. 811/2020
Auglýsing um takmörkun á skólastarfi

 5. gr. Framhaldsskólar.

Í öllum byggingum framhaldsskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfs­fólk geti haft minnst 1 metra fjarlægð sín á milli. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nándar­reglunni, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi, skal nota andlitsgrímu sem hylur munn og nef. Við þær aðstæður skal leitast við að bæði kennari og nemendur beri grímu. Skipuleggja skal staðnám í framhaldsskólum þannig að hver nemandi umgangist sem fæsta ein­stak­linga. Dreifa skal nemendum á fasta innganga í skólabyggingu eftir því sem kostur er og skulu gangar vera ferðarými. Fastir hópar og bekkir skulu forðast svo sem framast er unnt blöndun við aðra nemendur. Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu skulu ekki fara fram í skólabyggingum, svo sem málþing. Við íþróttakennslu eru snertingar heimilar milli nemenda á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða 1 metra nálægðartakmörkun í búningsklefum og á öðrum svæðum utan æfingasvæðis og keppnissvæðis. Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum framhaldsskóla skulu sótthreinsaðir milli nemenda­hópa. Jafn­framt skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og þar skal jafn­framt lögð áhersla á einstaklingsbundnar sóttvarnir.