Sýning og keppni á Degi íslenskrar tungu

Mánudaginn 16. nóvember var Dagur íslenskrar tungu um land allt. Deginum var fagnað í skólanum en í morgun var opnuð sýning á verkum nemenda í íslenskuáföngum. Nemendur völdu ljóð eða sögu eftir Jónas Hallgrimsson og endursköpuðu. Sköpuninni átti svo að skila á áþreifanlegu formi. Sýningin fékk heitið Mörgæs í klógulum stuttbuxum en orðin þrjú í titlinum eru öll komin frá Jónasi. Það var einn nemendanna sem eiga verk á sýningunni, Örlygur Svanur Aðalsteinsson, sem opnaði hana með því að klippa á borða.
 
Í hádeginu var svo orða-Kahoot á sal. Þar var spurt um gömul og ný íslensk orð, nýyrði og fleira tengt íslensku máli. Það var Guðjón Þorgils sem sá um að spyrja og tóku fjölmargir þátt. Það var Kristbjörg Katla Ólafsdóttir sem sigraði, Ágúst Þór Steinþórsson varð annar og Ásta María Arnardóttir þriðja og fengu þau að sjálfsögðu glæsileg verðlaun fyrir frammistöðuna.