Söngvakeppni framhaldsskólanna

Sunnudaginn 3. apríl fer fram Söngvakeppni Framhaldsskólanna á Húsavík og mun FS að sjálfsögðu taka þátt. Það er hann Þorsteinn Helgi sem stígur á stokk fyrir skólann okkar en hann ætlar að flytja frumsamið lag.

Þetta árið fer fram símakosning sem gildir 50% á móti atkvæðum dómnefndar. Til að greiða Þorsteini atkvæði verður hægt að hringja í númerið 900-9116.

Hvetjum alla til að horfa og styðja okkar mann. Keppnin hefst kl. 19:45 og verður í beinni útsendingu á RÚV.