Sögur úr FS - númer 20

Við höfum undanfarið birt sögur og minningar frá fyrrum nemendum í tilefni 50 ára afmælis skólans. Nú er það Ásdís Björk Pálmadóttir sem segir frá en hún útskrifaðist úr hársnyrtiiðn á haustönn 1981. Ásdís hefur einmitt kennt hársnyrtiiðn við skólann undanfarin 16 ár en þess má geta að meirihluti starfsfólks skólans útskrifaðist frá honum á sínum tíma.