Sögur úr FS - nr. 3

Í tilefni af 50 ára afmæli skólans óskuðum við eftir sögum og minningum úr skólanum frá fyrrum nemendum. Við fengum þó nokkuð af skemmtilegum sögum og birtum þær á næstunni. Að þessu sinni er það Guðni Oddur Jónsson sem segir frá. Guðni Oddur var formaður NFS skólaárið 2008–2009 og útskrifaðist sem stúdent á vorönn 2009. Hann segir hér frá alræmdum atburði sem tengist ræðukeppni, sjávardýrum og Verzló.