Skólameistari hefur fengið nóg

Kristján Ásmundsson skólameistari hefur sagt starfi sínu lausu þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af fimm ára skipunartíma sínum. Kristján hóf störf við skólann árið 1986 og er því að ljúka 40. starfsári sínu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Kristján tilkynnti starfsfólki skólans ákvörðun sína í fundartíma í morgun. Starfsfólki var mjög brugðið við þessar fréttir og felldu margir tár. Kristján hefur verið farsæll stjórnandi við skólann til fjölda ára og notið virðingar og vinsælda meðal starfsfólks.

Að sögn Kristjáns var hann á fundi með starfsfólki menntamálaráðuneytis í morgun um fyrirhugaða viðbyggingu við skólann. Ákvörðun um viðbyggingu fyrir verk- og starfsnám við fjóra framhaldsskóla var tekin fyrir tveimur árum. Á fundinum með ráðuneytisfólki kom fram að engar ákvarðanir hafa verið teknar um tímasetningu eða annað varðandi viðbyggingu við skólann. Því er ljóst að skólinn þarf að bíða enn um sinn eftir úrbótum varðandi húsnæði fyrir verk- og starfsnám en einnig bóknám og aðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk. Skólinn nýtir nú þrjá lausa gáma sem kennslustofur og leigir húsnæði á tveimur stöðum í bæjarfélaginu fyrir kennslu. Einnig er búið að breyta geymslum í kennsluaðstöðu og breyta bóknámsstofum í verklega aðstöðu. Í skólanum er mjög stór starfsbraut og mikill fjöldi nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Skólastarfið er því mjög fjölbreytt og mikilvægt fyrir samfélagið á Suðurnesjum. Nú þegar farið er að þrengja að á öllum sviðum varðandi húsnæði skólans er aðstöðuleysi farið að hafa veruleg áhrif á skólastarfið og starfsemi skólans.

Kristján telur nóg komið og hefur ákveðið að hætta störfum við skólann. Hann telur að hann komist ekki lengra með þetta mál og harmar áhugaleysi stjórnvalda á málefnum skólans.