Skólafundur þriðjudaginn 23. maí

Stýrihópur um sameiningu eða aukið samstarf Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Keilis býður til skólafundar með starfsfólki skólans, nemendum og forráðamönnum á sal skólans þriðjudaginn 23. maí kl. 16:00.

Þar munu Þorsteinn Gunnarsson og Gylfi Arnbjörnsson, fulltrúar stýrihópsins, mæta og kynna vinnulag stýrihópsins, hvaða forsendum hann er að ganga út frá og svara síðan fyrirspurnum.