Opið hús fyrir 10. bekkinga

Þriðjudaginn 2. mars næstkomandi verður opið hús í FS fyrir 10. bekkinga og forráðamenn þeirra.

Húsið opnar kl. 17 og verður námsframboð skólans kynnt. Hægt verður að ræða við námsráðgjafa, kennara, stjórnendur sem og fulltrúa frá nemendafélaginu.

Námsframboð skólans er fjölbreytt og verður hægt að kynna sér allar námsbrautir sem eru kenndar við skólann. Hægt verður að ganga um skólann með leiðsögn og kynna sér aðstöðuna.