Opið hús - 26. apríl frá kl. 17.00

Þriðjudaginn 26. apríl n.k. verður haldin námskynning á sal fyrir nýja nemendur og foreldra þeirra. Nemendur 10. bekkjar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Kynningin stendur frá kl. 17:00 - 18:30. Fagstjórar og einstaka kennarar verða á staðnum ásamt stjórnendum og námsráðgjöfum sem munu kynna skólann og það námsframboð sem skólinn býður upp á.