Ólafur Stefáns hjá Afreks

Nemendur á afreksíþróttalínu fengu góða heimsókn miðvikudaginn 11. nóvember þegar Ólafur Stefánsson kom í heimsókn. Hann hélt áhugaverðan fyrirlestur þar sem útgangspunkturinn var afreksþjálfun. Ólafur er einn fræknasti íþróttamaður þjóðarinnar. Hann er margreyndur atvinnumaður í handknattleik og á fjölda landsleikja að baki. Hans helsta afrek er án efa silfurverðlaunin með íslenska handboltalandsliðinu á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.