Ásdís María Grétarsdóttir hjúkrunarfræðingur verður í vetur til viðtals fyrir nemendur í skólanum alla miðvikudag kl. 10:00-14:00. Hún starfar sem skólahjúkrunarfræðingur á HSS og sinnir þjónustu í grunnskólum og mun nú bæta FS við.
Hlutverk Ásdísar Maríu í skólanum verður fyrst og fremst að veita nemendum stuðning, ráðgjöf og fræðslu varðandi heilsu og líðan. Hún mun aðstoða nemendur með það sem tengist andlegri líðan, geðheilbrigði, svefni, mataræði og hreyfingu, kynheilbrigði, nikótín-, áfengis- og vímuefnanotkun, verkjum, veikindum eða almennri heilsu og vellíðan. Hún mun einnig aðstoða nemendur við að finna viðeigandi úrræði og leiðbeina um hvert best sé að leita innan heilbrigðiskerfisins þegar þörf er á frekari aðstoð.
Ásdís María verður með aðstöðu við hliðina á skrifstofu skólans. Nemendur geta komið til hennar þangað eða bókað tíma í gegnum tengil á vef skólans. Utan viðverutíma er hægt að senda skilaboð á netfangið fs@hss.is.
Við bjóðum Ásdísi Maríu velkomna til starfa.