Ný þjónusta félagsráðgjafa

Um áramótin hóf Rannveig Sigríður Ragnarsdóttir félagsráðgjafi störf hjá skólanum. Rannveig býr að haldgóðri reynslu úr starfsendurhæfingu sem félagsráðgjafi hjá Samvinnu starfsendurhæfingu og VIRK á Suðurnesjum en sú reynsla nýtist vel í þessu nýja starfi. Hún hefur einnig reynslu af kennslu þar sem hún kenndi heimilisfræði í þrjú ár í Sandgerðisskóla.

Ráðning félagsráðgjafa er til reynslu á meðan starfið er í þróun. Þar með er skólinn að mæta kröfum um aukna þjónustu við nemendur sem glíma við tilfinningalegan og félagslegan vanda og þurfa aðstoð með sín mál. Ástæður þess að nemendur gætu þurft að leita til félagsráðgjafa geta verið margvíslegar, svo sem að byggja sig upp andlega og breyta neikvæðum hugsunum í jákvæðar, efla sjálfstraust og sjálfsöryggi, læra að setja sjálfum sér og öðrum mörk og öðlast vellíðan. Einnig aðstoðar skólafélagsráðgjafi nemendur við að greina stykleika sína og virkja þá, auka seiglu ásamt því að draga úr áhrifum ýmissa hindrana sem standa í vegi fyrir því að nemendur nái þeim markmiðum sem þeir stefna að. Mikilvægt er að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir hverju sinni og grípa snemma inn í. Ef í ljós kemur að nemendur þurfa á öðrum úrræðum að halda utan veggja skólans er gott samstarf við aðrar stofnanir á svæðinu svo sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Félagsþjónustu sveitarfélaganna og því greið leið að senda tilvísanir áfram í viðeigandi úrræði.

Þjónusta skólafélagsráðgjafans er nemendum að kostnaðarlausu og það eina sem nemendur þurfa að gera til að brjóta ísinn er að senda póst á Rannveigu rannveig.ragnarsdottir@fss.is og óska eftir viðtali.