Litagleði á Dimissio

Dimissio fór fram fimmtudaginn 30. apríl en þá bjóða væntanlegir útskriftarnemendur upp á dagskrá á sal. Þessi dimissio var sú fjölmennasta í sögu skólans enda hafa útskriftarhópar vorannar stækkað verulega undanfarin ár og þátttakan var óvenjumikil í ár. Að þessu sinni var litagleðin í fyrirrúmi en hópurinn mætti í málningargöllum sem hver og einn hafði skreytt og var gaman að horfa yfir þennan stóra og lítríka hóp. Hópurinn sprellaði aðeins í morgunsárið og samkvæmt venju var svo boðið upp á glæsilegan bröns í mötuneytinu. Síðan var komið að dagskrá á sal þar sem hópurinn byrjaði á að veita viðurkenningar fyrir vel unnin störf og reyndar ýmislegt fleira og þar komu þemakóngurinn, krútt skólans, BFF´s og fleiri við sögu. Síðan var komið að skemmtilegu myndbandi þar sem nemendur gerðu létt grín og eins og oft áður komu bílastæðamálin þar við sögu. Þá er ekkert annað eftir en að klára önnina með stæl en útskrift verður föstudaginn 29. maí.

Í myndasafninu eru fleiri myndir frá Dimissio vorannar.