Á útskrift vorannar brautskráði Kristján Ásmundsson skólameistari nemendur frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja í síðasta skipti en hann lætur nú af störfum eftir 40 ára starf við skólann.
Það kom fáum á óvart að Kristján gerði það ekki að umtalsefni en í ræðu sinni ávarpaði hann fyrst og fremst útskriftarnemendur og ræddi einnig um skólann og stöðu hans. Það kom því í hlut annarra að minna á starfslok hans. Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Telma Rut Eiríksdóttir brautarstjóri starfsbrautar flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólk en þær þökkuðu báðar Kristjáni fyrir framlag hans til skólans.
Undir lok athafnarinnar afhenti Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari Kristjáni gjöf frá skólanum og þakkaði honum fyrir fórnfúst starf undanfarin 40 árs. Viðstaddir risu á fætur og fögnuðu vel og innilega enda hefur Kristján verið ákaflega færsæll stjórnandi og kennari við FS.
Útskriftardagur er síðasti dagur skólaársins þar sem allir starfsmenn eru við vinnu og er venja að starfsfólk komi saman eftir útskriftarathöfnina. Þar færði starfsfólk skólans Kristjáni kveðjugjöf og að því loknu var honum vel fagnað.
Þó að Kristján hafi verið kvaddur á útskriftardag er hann þó ekki hættur störfum. Nýtt skólaár hefst 1. ágúst og Kristján hættir störfum þá. Hann mun því stjórna undirbúningi fyrir næsta skólaár eins og venjulega og við erum því í öruggum höndum.




