Jón vann Hljóðnemann

Söngkeppni NFS, Hljóðneminn, var haldin á sal fimmtudaginn 2. febrúar. Sjö söngvarar tóku þátt að þessu sinni og stóðu sig allir með prýði. Vel var mætt og góð stemmning í salnum. Þau Jóhanna María Kristinsdóttir, Þorsteinn Helgi Kristjánsson og Guðmundur Rúnar Júlíusson skipuðu dómnefndina en það er gaman að segja frá því að þau eru öll fyrrum nemendur skólans. Að lokum var það Jón Grímsson sem fór með sigur af hólmi og verður því fulltrúi skólans í söngkeppni framhaldsskólanna seinna í vor. Jón flutti lagið Unknown (To You) með Jacob Banks af stakri snilld.

Í myndasafninu eru myndir frá Hljóðnemanum.