Jólapeysudagur FS

Fimmtudaginn 1. desember var hinn árlegi Jólapeysudagur FS. Þennan dag mæta nemendur og starfsfólk í misfallegum jólapeysum og hlakka saman til jólanna. Starfsfólk skólans hefur haldið þennan dag hátíðlegan í mörg ár og undanfarin ár hafa nemendur bæst í hópinn. Þessi skemmtilegi dagur er góð tilbreyting þegar fólk er í óða önn við að ljúka öllu í lok annarinnar.