Hátíðardagskrá og opið hús á 50 ára afmæli

Haldið var upp á 50 ára afmæli skólans með opnu húsi og hátíðardagskrá laugardaginn 12. september. Gestir gátu skoðað skólann og aðstöðuna og reynt sig í ýmsum námsgreinum í kennslustofum. Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék á sal og tók nokkur lög áður en hátíðardagskrá hófst.

Dagskráin hófst á því að Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra flutti ávarp og bar skólanum afmæliskveðju. Guðlaug Pálsdóttir skólameistari ávarpaði síðan samkomuna. Þá var komið að Benóný Einari Færseth Guðjónssyni sem söng frumsamið lag og lék undir á píanó. Atli Þorsteinsson flutti ávarp fyrir hönd kennara skólans og Sveindís Valdimarsdóttir fyrir hönd fyrsta árgangs stúdenta frá skólanum. Þeir sem voru viðstaddir úr þeim hópi komu síðan á svið og var vel fagnað. Guðbrandur Einarsson settist við píanóið og leiddi salinn í afmælissöngnum til heiðurs FS. Sveindís tilkynnti síðan að hópurinn hyggst stofna nýsköpunarsjóð Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Honum er ætlað að styrkja nýsköpun í skólastarfinu og er ætlunin að fá fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu til að styðja við sjóðinn. Það var Kjartan Már Gunnarsson sem kynnti dagskrán og sagði um leið nokkrar skemmtilegar sögur frá veru sinni í FS.

Við lok dagskrárinnar undirrituðu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar fyrir hönd sveitarfélaga á Suðurnesjum, viljayfirlýsingu um stækkun verknámsaðstöðu skólans. Að því loknu var boðið upp á kaffi og afmælistertu og fleira bakkelsi. Gestir áttu góða stund og á meðan lék Djassbandið Þríó létta tónlist. Þríó skipa þau Birta Rós Sigurjónsdóttir, Jón Böðvarsson og Sigurður Baldvin Ólafsson en þau eru öll fyrrum nemendur skólans.

Við þökkum gestum okkar fyrir komuna og ánægjulegan dag.

Í myndasafninu eru myndir frá afmælishátíðinni.