FS fékk viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Fimmtudaginn 12. október hélt Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), stafrænu ráðstefnuna Við töpum öll á einsleitninni - Jafnrétti er ákvörðun, sem streymt var í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV. Þar kynnti Eliza Reid viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar, en það eru þeir þátttakendur sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum. Í ár er það metfjöldi eða 89 viðurkenningahafar.

Að hreyfiaflsverkefninu standa auk FKA, forsætisráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, PiparTBWA, Ríkisútvarpið, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá. Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til fimmtíu og sex fyrirtækja, ellefu sveitarfélaga og tuttugu og tveggja opinberra aðila úr hópi þeirra 239 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði.

Fjölbrautaskóli Suðurnesja var meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í ár. Það var Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari sem tók við viðurkenningunni. Myndin af Guðlaugu og Elizu Reed forsetafrú var tekin úr útsendingu frá ráðstefnunni.