FS er fyrirmyndarstofnun og efstur stórra stofnana

Fjölbrautaskóli Suðurnesja varð í 1. sæti í flokki stórra stofnana í könnun Sameykis á stofnun ársins. Þetta er annað árið í röð sem skólinn er í efsta sæti í sínum flokki.

Val á Stofnun ársins 2023 var tilkynnt á hátíð Sameykis þann 15. febrúar en titlana Stofnun ársins og Stofnun ársins - borg og bær hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í könnun Sameykis meðal starfsmanna þeirra. Könnunin náði til starfsmanna í opinberri þjónustu hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum.

Fjölbrautaskóli Suðurnesja varð í 1. sæti í flokki stórra stofnana í könnuninni og er þetta annað árið í röð sem skólinn er í efsta sæti í þessum flokki. Stærðarflokkarnir eru stofnanir með færri en 40 starfsmenn, stofnanir með 40-89 starfsmenn og stofnanir með 90 eða fleiri starfsmenn. Fimm efstu stofnanir í hverjum flokki hljóta titilinn Fyrirmyndarstofnun og fær skólinn þann titil nú í 8. sinn á síðustu tíu árum.
 
Það voru Kristján Ásmundsson skólameistari og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari sem tóku við viðurkenningunni fyrir okkar hönd.