FS er fyrirmyndarstofnun og efstur stórra stofnana

Fjölbrautaskóli Suðurnesja varð í 1. sæti í flokki stórra stofnana í könnun Sameykis á stofnun ársins.

Val á Stofnun ársins 2022 var tilkynnt á hátíð Sameykis þann 16. febrúar en titlana Stofnun ársins og Stofnun ársins - borg og bær hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í könnun Sameykis meðal starfsmanna þeirra. Könnunin náði til starfsmanna í opinberri þjónustu hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum.

Fjölbrautaskóli Suðurnesja varð í 1. sæti í flokki stórra stofnana í könnuninni en skólinn varð í 3. sæti í síðustu könnun. Stærðarflokkarnir eru stofnanir með færri en 40 starfsmenn, stofnanir með 40-89 starfsmenn og stofnanir með 90 eða fleiri starfsmenn. Fimm efstu stofnanir í hverjum flokki hljóta titilinn Fyrirmyndarstofnun og fær skólinn þann titil nú í 7. sinn á síðustu níu árum. Þess má geta að framhaldsskólar urðu í efsta sæti í öllum flokkum ríkisstofnana.